Eiðar

Eiðar, Fljótsdalshéraði. 

Hús PFÍ eru nr. 2 og nr. 4. Húsin eru í kjarrivöxnu fallegu umhverfi og standa við Eiðavatn. Um 14km akstur er til Egilsstaða þar sem er verslun, góð sundlaug og önnur þjónusta. 

Í húsi nr. 2 eru 2 svefnherbergi með svefnstæðum fyrir 6 (tvö tvöföld rúm og koja).
Í húsi nr. 4 eru 3 svefnherbergi með svefnstæðum fyrir 6 (hjónarúm og 2 kojur).
Húsin eru jafnstór 54m2. Allur venjulegur búnaður er í húsunum. Sængur og koddar fylgja en hafa þarf með sér rúmföt, handklæði, diskaþurrkur, borðklúta, salernispappír, sápur o.þ.h.  Áhöld til ræstinga og gólfmoppa er í húsinu. Gestir þurfa að þrífa og skilja vel við húsin fyrir næsta leigutaka. 

Innheimt er þrifagjald kr. 10.000 sé húsi ekki skilað í viðunandi horfi.
Húsum PFÍ fylgir bátur og björgunarvesti. Gasgrill er í húsunum.

Heimilisdýr eru ekki leyfð á svæðinu.