Eftirlaunadeild

Eftirlaunadeild Póstmannafélags Íslands hefur starfað frá 1979.  Félagsmenn eru um 225 í deildinni.  Aðalfund á að halda í febrúar ár hvert. 

Sumarferð Eftirlaunadeildar PFÍ er farin í byrjun júlí á hverju sumri. Ferðin er dagsferð um Suðurland eða Vesturland. Heimsóttir eru sögulegir og áhugaverðir staðir og söfn.  Snæddur er léttur hádegisverður. Kvöldverður hefur verið í boði Íslandspósts. Mikil ánægja er með þessar ferðir og er nánast alltaf fullt í þær.

Í byrjun aðventu er haldinn aðventufagnaður að Grettisgötu 89 í húsnæði félagsins.  Alltaf er í boði heitt súkkulaði og meðlæti. Lesin jólasaga og rithöfundar koma og lesa úr nýjum bókum. Ekki má gleyma happdrættinu þar sem margt góðra vinninga er í boði. 

Allir Póstmenn velkomnir sem hafa látið af störfum vegna aldurs.

Starfsreglur eftirlaunadeildar PFÍ

1. gr. 
Eftirlaunadeild PFÍ er stofnuð samkvæmt heimild í lögum félagsins frá 1979. Rétt til aðildar eiga:

  1. Allir félagsmenn PFÍ sem látið hafa af störfum fyrir aldurssakir og hafa hafið töku eftirlauna.
  2. Makar þeirra sem að ofan greinir í allt að fimm ár frá láti félagsmanns en án kjörgengis.

2. gr.
Deildin starfar í samráði við félagsstjórn PFÍ.

3. gr. 
Aðalfundur eftirlaunadeildar kýs sér 5 manna deildarstjórn til tveggja ára í senn og skal fulltrúi hennar eiga sæti í trúnaðarráði Póstmannafélagsins.

4. gr.
Í febrúar ár hvert skal halda aðalfund deildarinnar. Á þeim fundi skulu forráðamenn gefa skýrslu um starfsemina á liðnu starfsári. Bóka skal gerðir allra funda.

5. gr.
Starfsreglur skulu bornar upp á félagsfundi til samþykktar og öðlast þegar gildi