- Forsíða
- Um Póstmannafélagið
- Orlofsmál
- Vinnustaðurinn
- Lífeyrissjóðir
- Samningamál
- Sjóðir
- Eftirlaunadeild
- Hvert á að leita?
- Lög og reglugerðir
- Tenglar
Starfsmenntunarsjóður Póstmanna
Umsókn um styrk úr Starfsmenntunarsjóði
Nánari upplýsingar:
Skipulagsskrá
Úthlutunarreglur Starfsmenntunarsjóðs Póstmannafélags Íslands
Stjórn Starfsmenntunarsjóðs
Skipulagsskrá
1.gr.
Sjóðurinn heitir Starfsmenntunarsjóður Póstmannafélags Íslands og starfar hann með því skipulagi og markmiði sem segir í reglugerð þessari. Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr.
Markmið sjóðsins eru:
Að félagsmenn beri ekki kostnað af né verði fyrir tekjutapi af námi sem beinlínis er við það miðað að þeir geti tileinkað sér framfarir og tæknibreytingar á sínu sérsviði.
Að starfsmenn eigi án verulegs kostnaðar, kost á námskeiðum sem geri þeim mögulegt að taka að sér vandasamari störf en þeir gegna.
Ef störf eru lögð niður vegna tækni- eða skipulagsbreytinga eiga starfsmenn, án tilkostnaðar, kost á endurhæfingarmenntun sem geri þeim mögulegt að taka að sér önnur störf með óbreyttum tekjumöguleikum.
3. gr.
Stjórn sjóðsins skal skipuð tveimur mönnum og tveimur til vara sem kosnir eru á aðalfundi félagsins til þriggja ára í senn. Íslandspóstur skipar einn mann og einn til vara. Stjórnin skal halda gerðarbók og rita í hana allar samþykktir sínar. Til þess að samþykkt sé lögmæt þarf meirihluti stjórnarmanna að greiða henni atkvæði.
Stjórn sjóðsins er heimilt, telji hún þess þörf að ráða starfsmann er inni af hendi nauðsynleg störf til þess að tryggja að sjóðurinn sinni því hlutverki sem honum er ætlað.
4.gr.
Tekjur sjóðsins eru:
a) Framlag eins og umsamið er í kjarasamningi. Um skil á framlagi fyrirtækisins til sjóðsins skal höfð hliðsjón af reglum er gilda um skil á orlofsfé.
b) Vaxtatekjur.
Tekjum sjóðsins skal einungis varið í samræmi við markmið hans, sbr. 2. gr.
5.gr.
Til þess að annast hlutverk sitt skal sjóðurinn beita sér fyrir námskeiðum og annarri fræðslustarfsemi er lýtur að aukinni starfsmenntun sjóðfélaga eða endurhæfingarnámi þeirra. Starfsemi þessa er honum heimilt að rækja í samvinnu við aðra aðila.
Þá er sjóðstjórn m.a. heimilt að veita neðangreindum aðilum fjárstyrki úr sjóðnum til eftirtalinna viðfangsefna samrýmist þau markmiðum þeim sem að er stefnt, sbr. 2.gr.
1. Einstaka sjóðsfélaga til:
a. Að sækja námskeið eða stunda nám innanlands eða utan.
b. Rannsókna eða ákveðinna verkefna sem teljast til endurmenntunar þeirra.
2. PFÍ vegna námskeiðahalds á vegum þess eða í samstarfi við aðra.
6.gr.
Þeir sem æskja styrks úr sjóðnum skulu senda stjórn sjóðsins umsókn þar að lútandi þar sem fram kemur lýsing á því námi eða verkefni sem styrkurinn skal renna til, áætlaður kostnaður, hvenær fyrirhugað er að stunda námið eða verkefnið sem sótt er um styrk út á og aðrar þær upplýsingar er sjóðstjórn kann að telja nauðsynlegar.
Á grundvelli þeirra tekur sjóðstjórn ákvörðun um hvort og hve háan styrk viðkomandi umsækjandi skuli fá. Að jafnaði skal aðeins veita styrk vegna umsóknar sem lýtur að væntanlegum kostnaði umsækjanda. Þó getur sjóðstjórn veitt styrk vegna kostnaðar sem þegar hefur verið stofnað til innan viðkomandi reikningsárs, telji hún slíkt nauðsynlegt vegna sérstæðra ástæðna. Úthlutun styrkja úr sjóðnum skal að jafnaði fara fram a.m.k. ársfjórðungslega.
7.gr.
Reikningsár sjóðsins skal vera almanaksárið. Reikningar skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda og kjörnum skoðunarmönnum reikninga PFÍ. Skrifstofa PFÍ skal sjá um bókhald sjóðsins. Að öðru leyti er stjórn sjóðsins heimilt að semja við aðra aðila um störf þau sem nauðsynlegt er að vinna til að tryggja starfrækslu sjóðsins.
8.gr.
Árlega skal stjórn sjóðsins gera skýrslu þar sem gerð er grein fyrir fjárhag hans og starfsemi síðastliðið reikningsár. Skal skýrsla þessi send þeim sem eru aðilar sjóðsins.
Á hverjum aðalfundi PFÍ skal stjórn sjóðsins gera grein fyrir störfum hans og leggja fram endurskoðaða reikninga.
9.gr.
Reglur þessar sem settar eru samkvæmt ákvæðum kjarasamnings milli PFÍ og Pósts og síma hf. öðlast gildi hinn 1. janúar 1998. Þeir atvinnurekendur sem síðar vilja gerast aðilar að reglum þessum, gera það með skriflegri beiðni til sjóðstjórnar um að þeir óski eftir að gerast aðilar að þessum sjóði og að þeir gangist undir reglur þessar. Slík beiðni öðlast gildi þegar sjóðstjórn hefur samþykkt slíkt erindi.
Ákvæði til bráðabirgða
Stjórn Póstmannafélags Íslands skal skipa fyrstu stjórn sjóðsins og er kjörtímabil hennar fram að næsta aðalfundi félagsins.
Reykjavík 6. janúar 1998.
Úthlutunarreglur Starfsmenntunarsjóðs Póstmannafélags Íslands
1. Umsóknum skal skilað á sérstökum umsóknareyðublöðum til Starfsmenntunarsjóðs PFÍ. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu PFÍ, hjá trúnaðarmönnum og á heimasíðu félagsins.
2. Stjórn sjóðsins ásamt fulltrúa frá skrifstofu PFÍ heldur að jafnaði fund ársfjórðungslega, þar sem fjallað er um umsóknir sem borist hafa fyrir þann tíma.
3. Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna og tilgreina nafn, kennitölu, vinnustað, starfsaldur og til hvers þeir ætla að verja styrkfé. Sá sem skilar inn ófullkomnum upplýsingum eða röngum ber áhættuna af því að umfjöllun seinki eða verði hafnað.
4. Kostnaður umsækjanda við nám, námskeið, námstefnur, ráðstefnur eða annað sem hefur í för með sér sambærilega þekkingaröflun til aukningar starfshæfni og tengja má starfi umsækjanda er styrkhæf. Kostnaður vegna náms í hinu almenna skólakerfi t.d. öldungadeildum fellur hér undir svo og tölvunámskeið þó svo að umsækjandi vinni ekki að staðaldri við tölvu. Námsgagnakostnaður eða kostnaður vegna gistingar er almennt ekki greiddur. Endurhæfingarmenntun, í kjölfar þess að staða viðkomandi umsækjanda er lögð niður er einnig styrkhæf. Stjórn Starfsmenntunarsjóðs metur umsóknir vegna tómstundanámskeiða hverju sinni og getur tekið ákvarðanir um styrk vegna þeirra sem nemur allt að helmingi kostnaðar.
5. Stjórn sjóðsins setur reglur um hámarksfjárhæðir.
a) Nám/námskeið sem ekki skerðir tekjur ...................... 120.000kr.
b) Nám/námskeið sem er 1/2 mán. eða lengra en þó ekki lengra en eitt skólaár með
launaskerðingu ...................... 130.000kr.
c) Nám sem telst jafngilda skólavist í eitt ár og því sinnt launalaust eða því fylgi veruleg
launaskerðing ...................... 150.000kr.
d) Ráðstefnur/námstefnur ......................100.000kr.
e) Tómstundanám ......................100.000kr.
f) Ferðakostnaður vegna náms/námsskeiðs/ráðstefnu er styrkhæfur ef fjarlægð frá
heimili er u.þ.b. 50km eða meiri .............. 30.000kr.
Greiðslur úr sjóðnum fara fram eftir að umsækjandi hefur gert grein fyrir kostnaði t.d. með því að leggja fram frumrit reikninga eða önnur gögn sem stjórnin telur nauðsynleg. Nám má ekki vera eldra en frá haustönn árinu á undan úthlutunarári þegar sótt er um styrk.
6. Einungis félagar í PFÍ geta fengið styrk úr sjóðnum. Heimilt er að veita styrki til sjóðsfélaga úr sjóðnum í samstarfverkefni við aðra. Þegar umsækjandi fær styrk verður hann að vera í starfi hjá Íslandspósti hf. eða öðrum fyrirtækjum sem sinna póstþjónustu og hafa gerst aðilar að sjóðnum og staðið skil á iðgjaldi fyrir starfsmenn. Þeir sem láta af störfum hjá þeim fyrirtækjum sem eru aðilar að sjóðnum, eiga ekki lengur rétt til styrkja úr sjóðnum nema styrkurinn varði endurhæfingu þar sem staða umsækjanda hefur verið lögð niður, umsækjandi veikst eða hann orðið fyrir slysi.
7. Sjóðfélagar í 50% starfi eða meira skulu hafa verið félagar í PFÍ í eitt ár til að eiga rétt á styrk úr sjóðnum. Sjóðsfélagar í minna en 50% starfi skulu hafa verið félagar í tvö ár til að eiga rétt á styrk. Sjóðsfélagi sem uppfyllir ofangreind skilyrði og hefur skilað 3.500kr í félagsgjöld á síðustu 6 mánuðum á rétt á fullum styrk en þeir sem hafa greitt minna en 3.500kr eiga rétt á hálfum styrk. Þeir sjóðfélagar sem aldrei hafa hlotið styrk úr sjóðnum og uppfylla ofangreind skilyrði skulu að öllu jöfnu njóta forgangs við styrkveitingar.
8. Erlendir sjóðsfélagar eiga rétt á styrk til íslenskunáms án tillits til félagsaldurs.
9. Umsækjandi sem hlotið hefur styrk úr sjóðnum á næstliðnu almanaksári getur að hámarki hlotið styrk er nemur ónotuðu hlutfalli af hámarksupphæð sbr. 5. tölulið.
10. Ef styrkloforðs er ekki vitjað innan 9 mánaða frá dagsetningu tilkynningar sjóðsins til umsækjanda fellur styrkloforðið niður.
11. Úthlutunarreglur þessar eru samþykktar á stofnfundi starfsmenntunarsjóðs hinn 6. janúar 1998. Sjóðsstjórn getur gert undantekningar frá reglum þessum þyki sérstök ástæða til. Stjórn starfsmenntunarsjóðs gerði síðast breytingar á úthlutunarreglum á fundi sjóðsstjórnar 27. ágúst 2009.
Stjórn Starfsmenntunarsjóðs
Bergþór Kristjánsson, Póstmiðstöð, formaður Starfsmenntunarsjóðs
Runólfur Þór Runólfsson, Útkeyrsludeild
Ólafur Finnbogason fræðslustjóri, skipaður af Íslandspósti hf. skv. kjarasamningi
Til vara
Halla Reynisdóttir, Bókhald
Hilmar Þór Jónsson, Tölvu- og upplýsingakerfum
Skipuð af Íslandspósti hf.
Kristín Björg Kristjánsdóttir, deildarstjóri alþjóðamála