- Forsíða
- Um Póstmannafélagið
- Orlofsmál
- Vinnustaðurinn
- Lífeyrissjóðir
- Samningamál
- Sjóðir
- Eftirlaunadeild
- Hvert á að leita?
- Lög og reglugerðir
- Tenglar
Umsókn til sjúkrasjóðs PFÍ
Veikindaréttur
Veikist starfsmaður skal hann tilkynna það yfirmanni sínum og til Heilsuverndar. Félagsmenn Póstmannafélagsins ávinna sér veikindarétt.
Fyrsta árið greiðast tveir dagar fyrir hvern unninn mánuð.
Eftir eins árs starf 2 mánuðir á hverjum 12 mánuðum
Eftir 5 ára starf 4 mánuðir á hverjum 12 mánuðum
Eftir 10 ára starf 6 mánuðir á hverjum 12 mánuðum
Sjúkradagpeningar greiðast í allt að 180 daga á hverjum 12 mánuðum eftir að veikindarétti lýkur.
Sækja þarf um sjúkradagpeninga fyrir 20. hvers mánaðar til að greiðsla geti borist um komandi mánaðamót. Með umsókn um sjúkradagpeninga þarf að fylgja læknisvottorð. Hægt er að fylla út umsóknareyðublaðið (sjá hér ofar) og prenta það út og senda til skrifstofu PFÍ ásamt gögnum.
Sjúkrasjóður PFÍ styrkir eftir 12 mánaða samfellda aðild að sjóðnum í 50% starfi eða meira;
Sjúkraþjálfun/nudd 1.500kr í 25 skipti á ári.
Endurhæfing við Heilsustofnunina í Hveragerði 2.000kr á dag, hámark 20 daga á ári.
Styrkur til gleraugnakaupa 25.000kr á 24 mánaða tímabili.
Styrkur til sjónlags-/laiseraðgerða 25.000kr á hvort auga fari kostnaður umfram 100.000kr.
Heyrnartæki. Styrkurinn er 50% kostnaðar sem fer umfram 50.000kr en aldrei meira en 75.000kr á 24 mánaða tímabili.
Ferðakostnaður útfyrir heimabyggð vegna læknismeðferðar hámark 20.000kr á ári gegn kvittun fyrir fargjaldi og staðfestingu læknis.
Styrkur vegna skoðunar hjá Hjartavernd 12.000kr einu sinni á ári en aldrei meira en 50% kostnaðar.
Styrkur vegna glasa- og tæknifrjóvgunar 50.000kr í tvö skipti fari kostnaður í hvert skipti yfir 100.000kr.
Styrkur vegna meðferðar hjá viðurkenndum meðferðaraðilum; félagsráðgjafa, fjölskylduráðgjafa, sálfræðingi eða geðhjúkrunarfræðingi. 4.500kr í allt að 15 skipti á ári.
Styrkur vegna tannlæknakostnaðar. Styrkurinn nemur 50% af kostnaði sem fer umfram 50.000kr þó að hámarki 75.000kr á 24 mánaða tímabili.
Skila þarf frumriti greiðslukvittana vegna umsókna um þessa styrki og mega kvittanir ekki vera eldri en 12 mánaða gamlar.
Sjá nánar í starfsreglum stjórnar Sjúkrasjóðs PFÍ