Bókanir og yfirlýsingar með kjarasamningi

Yfirlýsing 1
Yfirlýsing vegna fastráðinna starfsmanna Pósts og síma hf. er voru í starfi þann 31. desember 1996.

Réttindaávinnsla þeirra fastráðnu starfsmanna Póst- og símamálastofnunarinnar er voru í starfi þ. 31. desember 1996 til veikinda og orlofs verður áfram með sama hætti og um getur í Reglugerð um veikindaforföll starfsmanna ríkisins nr. 411/1989 og í kjarasamningum Félags íslenskra símamanna og Póstmannafélags Íslands er giltu til 31. desember 1996.

Yfirlýsing 2
Skófatnaður

Frá 1. júní 2011 eiga bréfberar og bílstjórar sem ekki fá öryggisskó, rétt á skófatnaði að verðgildi allt að 25.000 kr. árlega á samningstímanum. Miðast greiðslan við fastráðinn starfsmann og starfshlutfall.


Yfirlýsing 3
Upphaf dagvinnu

Upphaf dagvinnu hvers starfsmanns skal ákveðið í ráðningarsamningi hans og verður ekki breytt nema að undangenginni uppsögn eða með samkomulagi.


Yfirlýsing 4
Yfirlýsing um veikindi og endurhæfingu

Veikindi og endurhæfingarmál
Samningsaðilar einsetja sér að endurskoða uppbyggingu á fyrirbyggjandi heilbrigðisþjónustu og vinnuvernd.

Markmiðið er að stuðla að því að brugðist sé við veikindum með fyrirsjáanlegum hætti og að starfsmanni sem veikist bjóðist viðeigandi úrræði sem fyrst. Þetta felur m.a. í sér aukinn sveigjanleika á vinnumarkaði til að tryggja það að einstaklingar sem veikjast eða slasast og eru í virkri starfsendurhæfingu hafi möguleika á að koma til baka í samræmi við vinnugetu sína á hverjum tíma.

Ljóst er að þessu markmiði verður aðeins náð ef gagnkvæmt traust ríkir milli atvinnurekanda og starfsmanna um fyrirkomulag við tilkynningu veikinda, endurkomu starfsmanna úr veikindum, fyrirbyggjandi heilbrigðisþjónustu í fyrirtækjum o.s.frv.

Samningsaðilar taka þátt í stýrihópi á vegum VIRK sem vinnur að þeim markmiðum sem nefnd eru hér að framan.

Sérstaklega verður fylgst með þróunarverkefni sem er að fara af stað á vegum VIRK um forvarnir og starfsendurhæfingu. Samningsaðilar munu nýta þá reynslu og þekkingu sem þar verður til inn í sínu starfi.

Samningsaðilar munu vera starfsmönnum þessa þróunarverkefnis til stuðnings og ráðlegginga vegna álitamála sem upp koma í verkefninu og snúa að lög- og kjarasamningsbundnum réttindum og skyldum á vinnumarkaði.


Yfirlýsing 5
Ákvörðun mánaðarlauna

Í ráðningarsamningi skal gera grein fyrir mánaðarlaunum, sem yfirvinna er reiknuð af, t.d. með tilvísun til launataxta, öðrum greiðslum eða hlunnindum svo og greiðslutímabili.


Yfirlýsing 6

Akstursgreiðslur bréfbera 

Íslandspóstur og Póstmannafélag Íslands munu á vettvangi samráðsnefndar taka til skoðunar samkomulag frá árinu 2004 um akstursgreiðslur bréfbera. Skoðun verði lokið 31. okt. 2011


Yfirlýsing 7
Stærð bréfberahverfa 

Íslandspóstur og Póstmannafélag Íslands munu á vettvangi samráðsnefndar taka til skoðunar ágreining sem upp kann að koma um stærð bréfberahverfa.
 

Yfirlýsing 8
25 mínútur í vaktavinnu

Ef breyting verður á fyrirkomulagi vaktavinnu hjá núverandi starfsfólki í vaktavinnu þannig að um skipulagða matar- og kaffitíma verður að ræða og þar með brottfall 25 mín. styttingar á vinnutíma, bætist það með 2 launaflokkum. 
 

Yfirlýsing 9
Greiðslur fyrir ökumannskort

Starfsmaður sem ráðinn er ótímabundið og unnið hefur þrjámánuði hjá fyrirtæki á rétt á endurgreiðslu kostnaðar vegna lögbundinnar endurnýjunar ökumannskorts hér á landi, skv. reglugerð um ökurita og notkun hans. Hætti starfsmaður innan sex mánaða frá endurnýjun korts er heimilt að endurkrefja hann um útlagðan kostnað, hlutfallslega miðað við starfstíma.