- Forsíða
- Um Póstmannafélagið
- Orlofsmál
- Vinnustaðurinn
- Lífeyrissjóðir
- Samningamál
- Sjóðir
- Eftirlaunadeild
- Hvert á að leita?
- Lög og reglugerðir
- Tenglar
Orlofsákvæði kjarasamninga
4.1 Lengd orlofs
Lágmark orlofs skal vera 24 virkir dagar. Orlofslaun skulu vera 10,17% af öllu kaupi, hvort sem er fyrir dagvinnu eða yfirvinnu. Eftir 5 ára starf hjá Íslandspósti hf. skal starfsmaður hafa eins dags orlof að auki og skulu orlofslaun þá vera 10,64%. Eftir 10 ára starf hjá Íslandspósti hf. skal starfsmaður hafa 28 daga orlof og skulu þá orlofslaun vera 12,07%.
4.2 Orlofstaka utan orlofstímabils
Þeir sem samkvæmt ósk vinnuveitanda fá ekki 21 dags sumarfrí á þeim tíma sem lög gera ráð fyrir að sumarfrí sé almennt tekið, þ.e. á tímabilinu frá 2. maí - 15. september ár hvert, skulu fá 25% lengingu á þann hluta orlofs sem veitt er utan ofangreinds tíma eða greiðslu sem því nemur.
4.3 Ákvörðun orlofstöku
Íslandspóstur hf. ákveður í samráði við starfsmann hvenær orlof skuli veitt.
4.4 Veikindi í orlofi
Veikist launþegi hér innanlands í orlofi það alvarlega að hann geti ekki notið orlofsins skal hann á fyrsta degi, t.d. með símskeyti, tilkynna vinnuveitanda um veikindin og hjá hvaða lækni hann hyggst fá læknisvottorð. Sama gildir ef starfsmaður veikist í landi innan EES-svæðisins, Sviss, Bandaríkjanna eða Kanada, það alvarlega að það leiði til sjúkrahúsvistar (einn dag eða fleiri dagar).
Fullnægi hann tilkynningunni, og standi veikindin samfellt lengur en þrjá sólarhringa innanlands eða 6 sólarhringa innan EES svæðisins, Sviss, Bandaríkjanna, eða Kanada, á launþegi rétt á uppbótarorlofi jafn langan tíma og veikindin sannanlega vöruðu. Undir framangreindum kringumstæðum skal launþegi ávallt færa sönnur á veikindi sín með læknisvottorði. Íslandspóstur hf. á rétt á að láta lækni vitja launþega er veikst hefur í orlofi.
4.5 Orlofslög
Að öðru leyti fer um orlof samkvæmt lögum um orlof nr. 30/1987
4.6 Orlofsuppbót
Starfsfólk, sem hefur áunnið sér fullan orlofsrétt, með starfi hjá Íslandspósti hf. og er í starfi í síðustu viku apríl eða í fyrstu viku maí, skal við upphaf orlofstöku eða eigi síðar en 15. ágúst fá greidda sérstaka eingreiðslu, orlofsuppbót miðað við fullt starf, en hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma. Fullt starf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.
Árleg orlofsuppbót er eftirfarandi:
2005 21.800 kr.
2006 22.400 kr.
2007 23.000 kr.
Á orlofsuppbót reiknast ekki orlofsfé.
4.7 Orlofssjóður
Íslandspóstur hf. greiðir í orlofssjóð Póstmannafélags Íslands 0,25 % af heildarlaunum félagsmanna. Þetta er gert ársfjórðungslega eftirá, skv. útreikningum Íslandspósts hf.