Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda



Samþykktir Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda
Samþykktir fyrir Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda er að finna á vef sjóðsins, á skrifstofu sjóðsins og á skrifstofu Póstmannafélags Íslands.

Lánareglur Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda

1. Lánaréttindi
Lán eru aðeins veitt til sjóðfélaga Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda. Lánsréttindi hefur sá sjóðfélagi, sem greitt hefur iðgjöld til sjóðsins eða samstarfssjóða samfellt í þrjú ár og öðlast á síðustu þremur árum a.m.k. 5 stig. Jafnframt er skilyrði fyrir lántöku, að viðkomandi hafi greitt iðgjöld til Söfnunarsjóðsins sl. 12 mánuði, sé greiðandi við lántöku og eigi hjá sjóðnum minnst 3 stig og standist greiðslumat
sé þess óskað.

2. Lánsupphæð, lánstími og kjör.
Lánsupphæð er allt að kr. 4.000.000,-. Lánstími er 8 - 30 ár og endurgreiðist lán með eigi færri gjalddögum en fjórum á ári. Lánin eru verðtryggð samkvæmt vísitölu neysluverðs til verðtryggingar og eru með jöfnum afborgunum. Hægt er að sækja um nýtt lán þremur árum frá fyrri lántöku. Vextir skulu vera 0,75% hærri en meðalávöxtun í viðskiptakerfi Verðbréfaþings Íslands á nýjasta flokki húsbréfa til 25 ára. Vextir taka beytingum 15. hvers mánaðar miðað við meðalávöxtun í síðasta almanaksmánuð samkvæmt skrá Verðbréfaþings Íslands. Vextir eru breytilegir og eru ákveðnir af stjórn sjóðsins.

3. Umsóknir
Umsókn skal fylgja fasteignamat, brunabótamat og nýtt veðbókarvottorð af eigninni. Ef á undan veðrétti sjóðsins eru önnur áhvílandi lán skulu fylgja umsókninni síðustu greiðsluseðlar viðkomandi lána sem sýna eftirstöðvar, uppreiknaðar með verðbótum og vöxtum. Lánsumsókn skal vera skrifleg. Einnig þarf að fylgja skrifleg yfirlýsing veðeiganda, sé hann ekki sá sami og lántaki, um þær skuldbindingar er hann tekst á hendur.

4. Tryggingar
Aðeins er lánað gegn fasteignaveði allt að 60% af fasteignamati viðkomandi eignar, þ.e. lán sjóðsins og uppreiknaðar eftirstöðvar annarra áhvílandi lána mega ekki vera hærri en 60% af fasteignamati og jafnframt innan við 85% af brunabótamati. Ef fasteignamat endurspeglar ekki markaðsverð fasteignarinnar, er miðað við matsverð sem löggiltur fasteignasali eða annar sérfróður aðili framkvæmir. Sjóðurinn áskilur sér rétt til þess að láta meta fasteignir sérstaklega áður en lán er veitt. Meta þarf húseign ef um nýbyggingu er að ræða. Umsókn er ekki tekin til greina nema húseign sé fokheld.

5. Kostnaður
Lántakandi greiðir lántökugjald sem er nú 1%, svo og kostnað við stimplun sem er 1,5% af lánsfjárhæð (greiðist hjá sýslumanni), þinglýsingu, greiðslumat og kostnað við mat á fasteign sé þess þörf. Lántakendur greiða einnig innheimtukostnað af afborgunum skuldabréfa á hverjum gjalddaga.

6. Afgreiðsla lánsumsóknar
Skilyrði fyrir lánsúthlutun er, að umsóknareyðublað sé útfyllt með fullnægjandi hætti. Lánsumsóknir eru afgreiddar eftir því sem fé er fyrir hendi hjá lífeyrissjóðnum. Sjóðurinn áskilur sér rétt til að hafna lánsumsókn sé veðstaða ekki innan veðmarka.