16.5.2012
--------------- Velkomin á Menningarhátíð í Munaðarnesi --------------


Velkomin á Menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi

26. maí kl. 14:00

Opnuð verður sýning á verkum listamannsins Ella

í þjónustumiðstöðinni í Munaðarnesi

Sigríður Thorlacius flytur nokkur lög við undirleik Guðmundar Óskars Guðmundssonar

Rannveig Thoroddsen líffræðingur fjallar um

gróður og flóru í Munaðarnesi og nágrenni

Boðið er upp á veitingar



4.4.2012
Umsóknir um orlofshús í sumar
Umsóknareyðublöð fyrir orlofshúsin eru komin á alla vinnustaði félagsmanna Póstmannafélagsins. Umsóknum á að skila fyrir 23. apríl nk. Einnig er hægt að sækja um rafrænt á heimasíðu PFÍ smellið hér. Hafið samband við skrifstofu pfi@bsrb.is eða í síma 525 8370 ef eyðublöð vantar. Staðsetning orlofshúsa og úthlutunarreglur Sjá nánar hér >
meira ->

3.4.2012
Aðalfundur PFÍ 23. apríl 2012
Aðalfundur Póstmannafélagsins verður haldinn mánudaginn 23. apríl nk. að Grettisgötu 89  1. hæð kl. 20:00. Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffiveitingar að loknum aðalfundi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta. Fundur Trúnaðaráðs er sama dag og byrjar kl. 10:00.

29.3.2012
Kosningar til stjórnar og trúnaðarráðs Póstmannafélags Íslands 2012

Kjörstjórn auglýsti í febrúar kosningu til Trúnaðarráðs og einnig eftir framboðum til stjórnar, samkvæmt lögum félagsins.

Bergþór Kristjánsson sem verið hefur fulltrúi 5.deildar félagsins, starfsmanna í Póstmiðstöð, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Aðrir stjórnarmenn gáfu kost á sér til endurkjörs.

Tvö framboð bárust til stjórnar fyrir 5. deild; Anna Jóna Arnbjörnsdóttir og Runólfur Þór Runólfsson.

Kosningar til stjórnar og Trúnaðarráðs fóru fram í byrjun mars og voru atkvæði talin 15. mars s.l.

Til stjórnar fyrir 5. deild var kjörin Anna Jóna Arnbjörnsdóttir.

Nýkjörið Trúnaðarráð mun á sínum fyrsta fundi 23. apríl kjósa fulltrúa sinn í stjórn.

Eftirtaldir eru kjörnir trúnaðarmenn Póstmannafélagsins fyrir árin 2012 – 2015 og mynda Trúnaðarráð félagsins.


meira ->

14.2.2012
Kjara- og viðhorfskönnun á vegum BSRB
Á næstu vikum mun Capacent Gallup framkvæma kjara- og viðhorfskönnun fyrir BSRB. Félagsmenn Póstmannafélagsins eiga því von á símtali á næstu dögum frá Capacent Gallup vegna þessarar könnunar. Félagsmenn eru hvattir til að taka þátt í könnuninni svo hún gefi sem gleggsta mynd af kjörum félagsmanna.                   Nánar um könnunina á www.bsrb.is
meira ->
Eldri fréttir