Starfsreglur eftirlaunadeildar PFÍ



1. gr.
Eftirlaunadeild PFÍ er stofnuð samkvæmt heimild í lögum félagsins frá 1979. Rétt til aðildar eiga:

a) Allir félagsmenn PFÍ sem látið hafa af störfum fyrir aldurssakir og hafa hafið töku eftirlauna.

b) Makar þeirra sem að ofan greinir í allt að fimm ár frá láti félagsmanns en án kjörgengis.

2. gr.
Deildin starfar í samráði við félagsstjórn PFÍ.

3. gr. 
Aðalfundur eftirlaunadeildar kýs sér 5 manna deildarstjórn til tveggja ára í senn og skal fulltrúi hennar eiga sæti í trúnaðarráði Póstmannafélagsins.

4. gr.
Í febrúar ár hvert skal halda aðalfund deildarinnar. Á þeim fundi skulu forráðamenn gefa skýrslu um starfsemina á liðnu starfsári. Bóka skal gerðir allra funda.

5. gr.
Starfsreglur skulu bornar upp á félagsfundi til samþykktar og öðlast þegar gildi.